​Sunna Ólafsdóttir er menntaður fjölskyldufræðingur og félagsráðgjafi MA og lauk meistaranámi frá félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands 2014.  Hún hlaut starfsleyfi Landlæknisembættisins sama ár. Sunna er einnig með diploma á meistarastigi í sálgæslu og lauk prófi í fjölskyldumeðferð 2024. Sunna hefur tilskilin réttindi í EMDR (e. eye movement desensitization and reprocessing) en sú meðferðarnálgun hefur reynst vel í úrvinnslu áfalla, erfiðrar lífsreynslu og áfallastreituröskunar. Sunna starfar sem klínískur fjölskyldufræðingur og félagsráðgjafi og hefur faglega reynslu m.a. í fjölskyldumeðferð fyrir fjölskyldur og einstaklinga með víðtækan vanda, s.s. samskiptavanda, fjölskylduerjur, skilnaði, áföll, missi, sorgarúrvinnslu fíkni- og ofbeldissambönd.